Saxifraga federici-augusti

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
federici-augusti
Íslenskt nafn
Þokkasteinbrjótur
Ætt
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Lífsform
Fjölær jurt, sígræn.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skær kirsuberjarauður til dökk-purpurarauður.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
15-20 sm
Vaxtarlag
Sígræn, þéttar, þýfðar blaðhvirfingar (rósettur) með áberandi kalkröndum á blaðjöðrum. Lík ítalíusteinbrjót (S. porophylla) en með stærri lauf
Lýsing
Líkur S. sempervivum en laufin eru 12-35 x 3-8 mm, breikka alltaf að oddinum, kirtlar með kalkútfellingu allt að 25 talsins, kalkútfellingar oft miklar. Blómskipunin skær kirsuberjarauð til dökk-purpurarauð, hulin af bikarblöðum.
Uppruni
Balkanskagi.
Harka
7
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í kanta.
Reynsla
Stutt reynsla - í N10 frá 2003.
Yrki og undirteg.
'Wisley' er kröftugri og stærri en aðaltegund og í skærari litum. -- ssp. federici-augusti. Grunnlauf í hvirfingu styttri en þó allt að 18 mm, breikka smám saman að oddi. Blómskipunin dökk-purpurarauð. -- ssp. grisebachii (Degen & Dörfl.) D.A. Webb. Blaðhvirfingin allt að 35 mm, grunnlauf venjulega spaðalaga, breikkar snögglega að oddi, blómskipun fagurrauð til kirsuberjarauð.