kóramót íslenskra kóra í evrópu 2017
Kóramót íslenskra kóra í Evrópu er haldið annaðhvert ár, til skiptis í þeim löndum þar sem kórarnir eru búsettir. Í apríl 2017 var mótið haldið í Kaupmannahöfn og tók Íslendingakórinn í Árósum þátt í fyrsta skipti. Á mótinu komu saman 12 Íslendingakórar með búsetu í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi og Lúxemborg.
Kóramótið endaði með tónleikum í Helligåndskirken, þar sem allir kórar sungu hver sitt lag, auk þess sem kórarnir sungu 6 lög í sameiningu. Það myndaðist því kór með 200 söngvurum, sem gerði upplifunina ógleymanlega, bæði fyrir þátttakendur og áheyrendur. Kvöldið endaði svo með veislumáltíð, skemmtiatriðum og dansi.
Íslendingakór Árósa stefnir að því að taka þátt í næsta kóramóti, sem verður haldið í Gautaborg árið 2019.