Jacques Villeneuve, sem nýlega var látinn fara frá BMW-liðinu, tróð óvænt upp á tónlistarhátíð í heimabæ sínum, St-Jean-sur-Richelieu í Quebec í Kanada, um síðustu helgi.
Villeneuve flutti þar dúett með Garou, fransk-kanadíska söngvaranum vinsæla frammi fyrir 60.000 áhorfendum.
Heimsmeistarinn fyrrverandi sendi frá sér geisladisk í sumar með eigin tónsmíðum. Smáskífa með laginu Accepterais-tu? hefur víða verið spiluð.
Villeneuve og eiginkona eru þessa dagana í sumarfríi á heimaslóðum ökuþórsins.